Blog is my life!
Tenglar :P
Aðrir Blöggarar
17.09.2007 20:14:50 / joel

Nýtt

Hah 9 mánuðir síðan síðast?  .. næstum því ár eins og ég sagðist ætla að gera .. En annars fyrir þá sem rata hingað inn þá fer allt sköpunarvitið mitt í www.blog.central.is/leet-krew

 

 

Au revoir :) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 00:21:52 / joel

j0L 2006

Í ljósi þess að jólin eru á næsta leiti þá er ég búinn að gera uppkast að lista yfir alla þá hluti sem mér þætti geðveikt hentugt að fá. Listin er settur upp þannig að eftirsóttasta gjöfin er efst o.s.f.v.

1. Vélmenni sem sér um að læra fyrir mig. Þarf að vera vélmenni!
2. Manneskju sem gerir sama gagn og vélmennið fyrirnefnda ef vélmennið finnst ekki.

nei nei segi svona.. mér datt þetta fyrst í hug þegar ég var að drukna í próflestri.

Ég veit nákvæmlega ekkert hvað ég vil.... nema ég er með eitt í huga og ég ætla að kaupa það sjálfur. En mér datt í hug brandara fyrir ykkur rasistanna og þjóðernishyggju menn en hann er svona:
       Hver er aðal útflutningsvara íslendinga? Óvinnufærir pólverjar.

Það les þetta enginn hvorteðer þannig ég hlít að komast upp með þennan "brandara". Ég veit það af því að ég hef ekki sagt orð í alveg heilt ár næstum .. ég hef gert tilraunir til að skrifa eitthvað en klúðrað því með t.d. að ýta óvart á backspase eða eitthvað jafn kjánalegt.. en sjáumst eftir svona circa ár .





» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 11:24:05 / joel

asdf

uhmm.. ég get ekki gert titil wtf? jumm nuna gat ég það

Anyways, Þorvaldur setti upp trampólinið sitt (ég setti það upp) og ég hef eins og þið vitið ekki staðið mig í stykkinu í þessum dagbóks skriftum og ástæðan er einfaldlega sú er að ég hef ekki gert neitt annað en hoppað af mér fæturnar... ég er búinn að hoppa svo lengi að andlega finnst mér sv_gravity vera 300 en er 800 svo það er bögg að hoppa ekki á trampólini... aðrir aukaverkar eru að ég er búinn að minnka um 10 cm.. ég sef ekkert á næturnar því hljóðið í gormunum sækja drauma mína sem ógurleg skrímsli sem valda því að ég get ekkert sofið.. ég var rekinn úr skólanum fyrir að vera fjarverandi of lengi, s.s var ég alltaf á trampólinu á skólatímanum... ég gleymdi hvernig maður skrifar þannig að ég fékk mommu til að skrifa þessa færslu... þannig að... þetta er vont en það venst

Palli fær bílinn sinn í dag Mini cooper \\\'80 or sum.. rauður :)

talandi um bíla.. þá er ég orðinn geggt hrifinn af Saab Turbo :) sjá mynd




» 2 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 13:04:30 / joel

pant frá nr 12 af páskaeggi!!!!!!!!

Cyanide and Happiness, a daily webcomic

Elska svipinn á krakkanum :klikk: :cry:

en varðandi mig þá segi ég allt ágætt og ég er high on life þessa stundina því ég er kominn í PÁSKAFRÍ!! :D og byrjaði reyndar fyrsta vinnudaginn minn í dag klukkan 6 og vann til hálf 8 og mætti svo 8 eld hress í stærðfræði... en shit það var svo leiðinlegt eitthvað að ég misti alla orkuna sem ég fékk frá vinnunni :(
ég fer vonandi norður burtséð frá því að ég verð kannski að vinna í fríinu, verð að komast á bretti !


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 14:26:33 / joel

R.I.P Gulli kisuköttur

Alltof margir dagar hafa liðið síðan kötturinn minn Gulli sást síðast. Hann er í mínum augum algjör ofurköttur og átti enginn annar köttur í hann. Ef eitthvað gæti lamið hann niður þá væri það ellin eða helvítis umferðin hérna og seinni möguleikinn var vonandi ekki ástæðan.

Ég er orðinn þreyttur og er þ.a.l geðveikt spenntur fyrir páskafríinu og skella mér norður á frkn sweet bretti. Alltof langt síðan síðast!!! hvar er frkn snjórinn hérna á "ís"landi???? ekki í Bláfjöllum allaveganna.

over  and out!



» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 02:41:53 / joel

J fyrir Jóel

Skrapp til borg óttans með nokkra djöfla í afturdrægi fyrir drjúgan skylding og skellti mér í bíó til að sjá V for Vendetta sem ég verð að gefa 11 af 10! ..
Ætla ekki að hafa þetta lengra soví.

setning dagsins: Where is my money bitch?
lag dagins: uhn tiss uhn tiss uhn tiss

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 22:45:32 / joel

Góð pása

Góður tími hefur liðið síðan nýj færsla sýndi sig hérna síðast, má þá kenna leti, tölvu-, og hugmyndarleysi um. Mér hefur reyndar gefist tækifæri að skrifa hérna og eru þau kannski 5 stk. en alltaf í fknfkfnakfnagag'oagjagnang þá eyddist alltaf helvítis færslan og ég gafst hreinlega upp og næstum grátið.... Þetta á allt eftir að breytast því ég fer til rvk á morgun að ná í fartölvu sem ég var að festa kaup á :D loksins!

Það er hellingur að gerast hjá mér þessa dagana þar á meðal páskafrí þarsem ferð norðurs hefur verið gert að hefð og fkn prófdagar... sem ég ætla ekkert að stressa mig yfir :) síðasti prófdagurinn er held ég 12. mai og eftir það er sweet sweet sumarfrí sem ég mun eyða í vinnunni.

Var að frétta að bróður ( Palli ) minn hafi keypt sér Austin mini!! samt ekki alveg ákveðið.

btw: krewið mitt á "loksins" eigið blögg og er slóðin á það www.blog.central.is/leet-krew


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 22:08:22 / joel

Yndislega kvef :D

Það er fjör heima hjá mér, það var mikið fjör í gær, ennþá meira fjör í dag...

Fjórir dagar síðan c.a 12 ára. Hann er gullbröndóttur, frekar horaður miðað við allan matinn sem hann fær - gruna mjög svarta feita köttinn í næsta húsi -, og hann er kallaður Gulli af okkur.. man ekki hvað alvöru eigandinn kallar hann. Æðislegur köttur sem ég vil fá aftur thx.

Eitthvað sem skiptir litlu máli:

talvan er eitthvað biluð, kannski hefur aldurinn(6 ára) eitthvað að segja um það, og ég gafst upp að laga hana og ætla að fjárfesta í nýrri anytime soon .. - er í talva bróðir míns sem er held ég eldri en mín talva :\

ég mætti ekki í skólann :O:O:O:O:O:O:O:O vegna veikinda og ég veit ekki hvort ég mæti á morgun :(:(:(:(:(:(

Hehe, ég ætlaði að plata einhverja af kunningjunum mínum til að horfa á spólu a.k.a moodbreaker en bíddu?? eru allir að fara á Vegas sem er söngleikur leikinn af nemendum FVA? jubb ég er líka hissa því ég var eins og ég man best aldrei spurður hvort ég væri game ( sem ég náttúrlega er) - Minnir mig á 4 stig* atvikið

ég er þó alltaf game að fyrirgefa og er þetta bara sandkorn í banka hneykslanna.


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 20:18:48 / joel

okay, test nr.3

gott að ég gerði c/p í þetta skiptið...

Bubbi Morthens var einu sinni uppáhaldið mitt, þá var ég svona 8-9 ára og simpleminded, en svo breyttist ég og hann hætti að vera uppáhaldið mitt... kannski var það Backstreetboys sem komu í staðin I dno. En málið var að ég misti aldrei álit á honum hann bara gleymdist aðeins hjá mér en núna veit ég alveg um hann og ekki er sjón að sjá:\ Þannig er það að mér fannst hann töff og hann spilaði góða tónlist en núna held ég að hann sé eitthvað veikur því allir keppendurnir í Idol sucka donkey og Bubbi hælir þeim.. ef Bubbi morthens væri sá sami og Bubbi 8 years ago þá væri hann búinn að skjóta þetta lið fyrir að þykjast kunna að syngja. Mér finnst hann svolítið sell out í þessu dómara hlutverki.

img461/2983/04hm.jpg

Bakþankar: Kannski ekki sú rökréttasta skoðun þarsem ég hef ekki verið að fylgjast með Idol það mikið en þetta finnst mér í "fljótu bragði." :S


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 22:40:46 / joel

Hæhæ

Hvenær veistu þegar konur er að fara að segja eitthvað gáfulegt? Hún byrjar á setninguna á " Vitur maður sagði eitt sinn við mig..."

Háskóla ferðin var niðurdrepandi þó hún hafi verið okay á köflum... það var reyndar frekar óþægilegt að sitja á fyrirlestrinum upp í HR því það var eins og konan ætlaði að owna Háskóla íslands í ræðunni.. anyways, ég taldi 23 Toyota Yaris frá kringlunni og heim :) ... eða tímann sem ég var vakandi, svaf alla leið upp að göngum og út.

Og já! shit hvað það hefði verið þægilegra að vera krakki í rvk um öskudaginn.... aldrei skítkalt því maður var bara í helvítis kringlunni, það er reyndar ókostur fyrir þá sem ætla að fá sér eitthvað að borða á skyndibitastöðunum þarna..



» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 18:13:08 / joel

SKOÐIÐ FKN BLÖGGIÐ MITT, ÉG VIL MÖRG VISIT!!!!

<- Ég hugsa einmitt þannig, bendi fólki á að skoða blöggið mitt aðeins útaf áhuga mínum á háum tölum sem verða til ef ég fæ fólk til að koma hingað.

nei ég reyndar hugsa ekki þannig heldur finnst mér ég hafa ýmsar skoðanir sem ég vil að fólk viti um þess vegna skrifa ég á helvítis netinu! ef ég vildi eitthvað annað þá væri ég að skrifa í einhverja litla stíla bók !

Ég ætla ekki að gera MÁNAÐARINS horn eða eitthvað í þá áttina þannig að þeir sem bíða eftir því geta einfaldlega gleymt þessari síðu ^^

Np; Dikta - Breaking the Waves 8)

Á morgun fer ég með skólanum að skoða Háskóla og mun það taka allan daginn.... Ég mun þar af leiðandi læra um háskólan og pæla í framtíð minni þarsem aðrir vinir mínir pæla í framtíð sinni og læra að baka pönnukökur!!
 
Þessi ferð er hluti af því sem við köllum 'Opnir Dagar' í skólanum, þetta eru 3 dagar sem eru fyrir ýmis námskeið sem er frjálst að velja á :)

á fimmtudaginn fer ég í íþróttamót og hlusta á samræður um Phsycadelic Tónlist :):):) em ég mun örugglega fíla því ég er ágætur tónlistar aðdáandi og svo er um kvöldið ball sem ætlar vonandi að vera skemmtilegt sem er örugglega pott þétt því að páll óskar sér um tónlistina

Á föstudaginn verður líf og fjör á Stjórnmálafundi !! Þetta verður greinilega eins og alvöru alþingisfundur.... allir geðveikt þunnir eftir partíið kvöldið áður :) og þar af leiðandi ekkert smá pirraðir....



» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 22:08:56 / joel

Ísland for the loose.

Sæl

Ég er byrjaður að halda að ég sé að vera hnakki. Ekki var ég reyndar að pæla í þessu fyrir en vinir mínir benntu mér á þetta og það er þvílikur félagsþrýstingur frá þeim að maður trúir bókstaflega öllu sem þeir segja.. t.d 4 stig fyrir sjálfsmark :S??!?
Anywho... ef að fara í ræktina og stunda hommagrill sé Hnakkadelic then lock me up and throw away the key...

Allaveganna, ég vil endilega koma skoðunum mínum á framfæri og þetta er tilvalið tækifæri. Mér finnst Ísland ömurlegt þegar það á við verð á hlutum og kvikmynda bransann hérna... T.d auglýsingin sem þið sjáið á þessari síðu með Underworld - Evolution, einhver sms leikur sem gefur manni miða á myndina ef maður vinnur. En varðandi myndina þá gat ég sótt hana á netinu fyrir mánuði síðan sem þýðir að einhver er búinn að sýna fyrir mánuði í öðrum löndum en á Íslandi. Það er svo mikið rugl að svona mikill tími eigi að líða frá frumsýningu einhverjar myndar í BNA og á Íslandi.... til að mynda allar stórmyndirnar eru sýndar á svipuðum tíma en þessar litlu koma seinna sem mætti vera útaf ýmsum litlum ástæðum sem ég fæ ekki skilið. Og já, Íslensk bíó og íslenskar vídjóleigur flytja bara inn það er big hit í BNA og það er like 1% af myndunum sem eru framleiddar í heiminum og við endum á því að sjá ekki shit af því að þeir sem flytja inn draslið vilja bara græða... meina ég borða rúsínu popp sem er framleitt í afskekktu héraði í nepal en það flytur það enginn inn því það myndi aldrei seljast :S

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 15:40:27 / joel

Dæmigerður dagur í lífi Jóels - Must read!


Ég svaf eins og ég hef stundum verið að gera síðan ég man eftir mér. En það er að ganga í svefni. Málið var að það var einhver helvítis fluga í herberginu sem ég var ekkert smá hræddur við svona hálfsofandi en ég náði að fanga hana í sængina mína og lét hana bara vera þar. En svo þurfti ég að nota sængina inní gestaherbergi sem er frekar þunn og það var ástæðan afhverju ég vaknaði um nóttina og fann hvað ég var geðveikt þreyttur og kalt en þurfti að pissa. Mér leið hálf-ömurlega en hugsunin um að geta farið aftur uppí rúm hélt mér ágætum. En á klóstinu var klukka sem sýndi hálf 8 .... þannig ég var bara að vakna til að fara í skólann.

Í skólanum er ég svo hálf máttlaus eftir geðveikt erfiðan gærdag og það versta var að mér klæjaði svo ógeðslega því húðin var svo þurr eftir allar sturtuferðirnar or sum:\

Öll þessi óánægja var samt bara sandkorn miðað við ánægjuna sem ég myndi upplifa þegar ég færi í DODGEBALL sem var 14:20. Eeeeeen... í gær þá lofaði ég palla að fara til RVK og sækja um Flugskyrteinið hans :) ég fékk gaujja til að fara með mér og við lögðum svona 1:05 af stað..... SEM er náttúrlega absúrt því ef dodgeball er 14:20 þ.á missum við af því!! ef miðað er við að fram og til baka tekur 90 min (45 + 45) og þá er klukkan 14:30 þegar við komum til baka. En við komum 14:45 til baka því umferðin var ógeðsleg og ég vissi ekki rass hvar Georvaresghawatercoorps húsið væri.... en ég komst að því svo gegnum símann við palla :)

Þetta er þar af leiðandi kannski ekkert svo slæmur dagur? Ég komst til að sjá liðið mitt lenda í 2. sæti af 12 manna keppni or sum en þá gerist það al versta!

Á leiðinni af fkn bílastæðinu KLESSI EG Á... og ég í óretti... (ég er náttúrlega að bakka) En þetta var samt okay.... málningin af mínum bíl nuddaðist bara smá yfir á fornarlambið og einhverjar smá rispur mynduðust þannig að það var mjög heppilegt að ekkert verra hafi gerst :)

Klukkan er bara 15:40 núna... hef mikinn tíma til að gera þennan dag enn þá verri!

Bæbæ :)



P.S Takk gaui fyrir að fórna 1sætinu í dodgeball og koma með mér til rvk.. en wtf HVERT fórstu þegar ég klessti á.. hef ekki séð þig hlaupa svona hratt áður..

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 20:08:48 / joel

Atli sveik hann börk og Brennt barn forðast eldin.

Titillinn segir allt sem segja þarf. En fyrir þá sem vita ekki hvað ég meina þá fór ég í ljós og brenndi mig fáranlega mikið.. hélt ég væri með nógugott þol eftir allt þetta flipp í útlöndum. Fæ kannski að vita atvinnuleyndarmál kidda fyrir næsta tíma :)

Þið haldið örugglega að ég sé að svíkja ykkur albínóanna en ég er aðalega að hugsa exemið sem hrjáir húðina ;););)

Ég ætla svo að bæta við í gagnabankan minn um fyndin atvik og læti.. vil endilega að þið commenterið þessa færslu með einhverjum góðum gullkornum þarsem ég kem við sögu :) Takk takk


Np; "Gilbert O'Sullivan - Track 20" duddududdu 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 17:51:31 / joel

mmmm lýsi

Í nótt dreymdi mig draum, þ.e.a.s ég dreymdi draum. Þetta var kannski martröð því ég meyddi mig í draumnum. Ég var efst á einhverju, stiga eða syllu, og ég ákvað að hoppa bara sísvona. Ég lenti vel en bara með hausinn á undann og fannst mér eins og ég hafi gleypt sand þegar ég lennti en svo var ekki því þegar allt í einu læknir byrjaði að tala við mig þá brosti ég og hann gaf frá sér svona "ewww" og leit við. Ég hafði þá brotið í mér næstum allar tennurnar og var í shokki. Ensuite var ég við einhvern spegil og sá hversu ílla tennurnar mínar höfðu orðið og síðan var einhver þarna hliðiná mér að spurja hvað ég hefði gert og ég sagði honum söguna og svo vaknaði ég.

    Anywhoo.. Einhverjir búnir að spekka lost 224 ? Þetta er satt hjá palla, þeir eru komnir út í einhverja vitleysu.. ATH spoiler: Já afhverju segi ég það? t.d þegar þessi Saviour gaur vaknar við einhver leiðinleg froska hljóð þá kemur bara einhvað ævintýri i kringum hann og þennan feita til að leita að froskinum.. Og allt þetta aukastuff sem gerir þetta að sömu sápunni og bold & beautiful:




» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3